UM UMA.IS

Uma.is er netverslun sem var stofnuð í desember 2008. Við leggjum áherslu á að selja skemmtilegar, flottar og einstakar vörur frá ungum hönnuðum hvaðanæva úr heiminum. Vörurnar sem við seljum eru fluttar inn frá Bandaríkjunum, Kanada og Evrópu og er íslensk hönnun keypt beint af hönnuði. Við leitumst við að selja allar vörur og einnig íslenska hönnun á góðu og sanngjörnu verði.

Uma.is selur einnig innfuttar vörur sínar til annara verslana sem sérhæfa sig í sölu á spennandi hönnun.

Hvað þýðir Uma?

Uma er nafn fallegrar og dularfullrar Indverskrar gyðju en einnig er Uma skammstöfun fyrir Urban materials. Uma er því einkennandi nafn fyrir vörur netversluninnar. Endilega hafðu samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna varðandi vörur okkar. Þú getur sent okkur tölvupóst eða haft samband símleiðis.

Lógó og netumhverfi uma.is var hannað af Eggerti Ragnarssyni, grafískum hönnuði.



Kveðja,

Uma.is
JA Ísland ehf.
Ólafsgeisli 28
113 Reykjavík
KT: 590302-3680
VSK-nr: 74764
Sími: 862-1900
uma@uma.is



Hleður...