SKILMÁLAR OG REGLUR
AFHENDING
Að jafnaði tekur afgreiðsla pantana 1-2 virka daga eftir að pöntun berst. Allar vörur eru sendar með Íslandspósti og er sendingarkostnaður 700 kr fyrir hverja pöntun innan Íslands. Ábyrgðir og flutningskskilmálar Íslandspósts gilda um afhendingu vörunnar. Netverslun uma.is ber enga ábyrgð á skemmdum sem kunna að verða á vörum í flutningi.
VERÐ
Öll verð í netverslun uma.is eru gefin upp með virðisaukaskatti. Vinsamlegast athugið að verðið í netversluninni getur breyst án fyrirvara. Reynt er eftir fremsta megni að tryggja að réttar upplýsingar séu í netverslun uma.is og eru allar upplýsingar og verð birt með fyrirvara um myndabrengl eða prenntvillur.
GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Hægt er að greiða fyrir vörukaup með greiðslukorti. Greiðslusvæðið er varið með dulkóðun. Við geymum engin kortanúmer og allar kortafærslur fara fram í gegnum vef korta.is. “Greiðslan fer öll fram á greiðslusvæði Netgreiðslna Korta og sér því Kortaþjónustan um að öllum öryggisráðstöfunum sé beitt og öryggiskröfum sé fullnægt. Greiðslusvæði Netgreiðslna Korta er varið með SSL dulkóðun og er greiðsluferlið sjálft í samræmi við öryggiskröfur frá alþjóðlegu kortafyrirtækjunum, MasterCard International og Visa International, svokölluðum PCI-DSS staðli.”
Einnig er hægt að greiða fyrir vöru með því að leggja inná reikning JA Ísland ehf. Í greiðslumáta við lok pöntunar er hakað við kreditkort og pöntunin send, pöntunin mun þá birtast í kerfi uma.is sem ógreidd. Við innlögn á reikning JA Ísland ehf. þarf að senda tilkynningu um innlögn á uma@uma.is.
KT: 590302-3680 Reikningur 114-26-5903
Sé þess óskað að vara sé send með Póstkröfu ber kaupandi kostnað póstkröfugjalds. Auk þess bætist við flutningskostnaður sem getur verið hærri en sá sendingarkostnaður sem uma.is setur á vörur sínar.
SKILARÉTTUR
Heimilt er að skila vöru innan 14 daga frá því að hún er afhent og getur kaupandi fengið endurgreitt innan 30 daga. Kaupandi greiðir sendingarkostnaðinn sem til fellur við skil á vörunni. Kvittun þarf að fylgja með vörunni og framvísa þarf vörunni í því ástandi sem hún var við kaup og í upprunalegum umbúðum. Ef vara er gölluð greiðir uma.is sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vörunni og endurgreiðir vöruna að fullu. Nauðsynlegt er að senda tölvupóst og skýra frá galla vörunnar áður en hún er send í pósti. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003
TRÚNAÐUR
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskipti sín við netverslunina. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
ÞESSI SAMNINGUR ER Í SAMRÆMI VIÐ ÍSLENSK LÖG
