
Fréttir
NÝ SENDING FRÁ HILDI HAFSTEIN
Dagsetning: 25 Júl 2010
VEGGFÓÐUR Á 30% AFSLÆTTI
Dagsetning: 24 Júl 2010

SUMARLÍNA MIMOTICA MICOLA 2010 KOMIN Í HÚS!
Dagsetning: 13 Júl 2010
NÝ SENDING AF RÓMANTÍSKUM LEÐURTÖSKUM
FRÁ MIMOTICA MICOLA KOMIN Í SÖLU
"SJÁ UNDIR NÝJAR VÖRUR"
ÞÖKKUM VIÐTÖKURNAR!
Dagsetning: 15 Jún 2010

Við hjá Uma.is og Hildur Hafstein þökkum frábærar viðtökur á nýju Kora orku- og vinaarmböndunum. Sendingin sem kom í dag seldist strax upp og eru komnar biðpantanir fyrir næstu sendingu. Ný armbönd eru í framleiðslu og koma inn 01.júlí 2010
Kær kveðja UMA
NÝ SENDING AF KORA, ORKUARMBÖNDUNUM!
Dagsetning: 13 Jún 2010
Síðasta sending af Kora Orku og-Vinaarmböndum Hildar Hafstein fyrir konur, seldist upp samdægurs.
Ný sending er væntanleg inn 15. júní 2010
Kveðja Uma
KORA ORKU OG VINAARMBÖND HILDAR HAFSTEIN!
Dagsetning: 11 Jún 2010

Við hjá Uma erum stolt af að bjóða til sölu Orkuarmbönd Hildar Hafstein, við rétt náum að bjóða hana velkomna með vörur sínar þegar þær eru nánast uppseldar! En engar áhyggjur hún er að framleiða á fullu og eigum við von á annari sendingu innan tíðar. Svo fylgist vel með hér á síðunni okkar!
Hér eru upplýsingar um armböndin en þess má geta að Hluti söluverðs rennur til uppbyggingar heimilis og skóla fyrir munaðarlaus börn í Togo, Afríku.
KORA armböndin eru einstakir handunnir skartgripir, einskonar vina eða orkubönd. Uppspretta armbandanna er úr andlega orkuheiminum, innblásin af búddískri trúarbragðafræði, með skírskotun í malabönd, bænabönd og almenna hippamenningu. Hvert armband er einstakt, unnið úr orkusteinum, endurunnu gömlu skarti, skrautsteinum, við og silfri. Armböndin búa yfir mismunandi orku og eru öll uppbyggjandi fyrir líkama og sál.
Armböndin koma í gjafapoka með miða þar sem eru upplýsingar um orkuna sem hvert armband býr yfir!
Okkur finnst þetta tilvalin gjöf handa einhverri uppáhalds !
Orkukveðja
UMA
SENDINGARDAGAR Í SUMAR
Dagsetning: 04 Jún 2010
Allar pantanir hjá uma.is eru sendar út eftirfarandi daga í sumar:
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga!
Pantanir sem berast á fimmtudegi eða föstudegi ættu að berast kaupanda á mánudegi og í síðasta lagi á þriðjudegi.
Kveðja Uma í sumarskapi
Ísland skart frá Raven Design
Dagsetning: 22 Apr 2010

Ísland skartið hefur aldeilis slegið í gegn, en nýverið tókum við í sölu fallegt og vandað skart frá hönnuðum Raven design. Að því tilefni er vel við hæfi að bjóða þau velkomin á uma.is með vörur sínar. Skartið er Ísland hálsmen, Ísland eyrnalokkar og Hrafn hálsmen, öll eru þau úr laser skornu plexigleri! Þetta er tilvalin gjöf fyrir vini og vandamenn innanlands sem utan, svo er ekki slæmt að gefa sjálfum sér sumargjöf. Vörur Raven design eru íslensk hönnun og framleiðsla!
Sjá undir Kona/Skart eða undir Íslensk hönnun!
Kveðja Uma
Pantanir heim að dyrum samdægurs!
Dagsetning: 21 Des 2009
Allar pantanir sem berast frá og með deginum í dag til 23. desember verða keyrðar heim að dyrum samdægurs.
Pantanir sem berast seinnipart á Þorláksmessu verða keyrðar heim á aðfangadagsmorgun!
Kveðja Jóla Uma
Uma.is er 1 árs í dag
Dagsetning: 19 Des 2009

Uma.is á 1 árs afmæli í dag og af því tilefni er 30% afsláttur af öllum töskum og veggfóðri til jóla!
Gleðileg jól
