Kora mini orku og vinaarmband-Ungbarna!
KORA mini armbönd fyrir ungabörn er tilvalin sængur eða skírnagjöf. Þetta eru einstakir handunnir skartgripir, einskonar vina eða orkubönd. Uppspretta armbandanna er úr andlega orkuheiminum, innblásin af búddískri trúarbragðafræði, með skírskotun í malabönd og bænabönd.
Hvert armband er einstakt, unnið úr orkusteinum, endurunnu gömlu skarti, skrautsteinum, við og silfri. Armböndin búa yfir mismunandi orku og eru öll uppbyggjandi fyrir líkama og sál.
Armböndin koma í gjafapoka með miða þar sem eru upplýsingar um orkuna sem hvert armband býr yfir
RIVERSTONE: Veitir ró og er uppbyggjandi
Hluti söluverðs rennur til uppbyggingar heimilis og skóla fyrir munaðarlaus börn í Togo, Afríku.
Íslensk hönnun og framleiðsla
Hönnuður er Hildur Hafstein
